Barnamenningarhátíð 2024 - Forsíða
Barnamenningarhátíð 2024
Hátíðin fer fram dagana 23.-28. apríl. Í ár er þema hátíðarinnar lýðræði og verður lögð sérstök áhersla á viðburði sem tengjast lýðræði. Allir viðburðir skulu fara fram á meðan hátíðin stendur og vera þátttakendum að kostnaðarlausu.
Hátíðin fer fram um alla borg og býður upp á stórar og smáar sýningar og viðburði sem unnir eru fyrir börn eða með börnum. Börn sýna verkin sín á virtum menningarstofnunum og taka að miklu leyti yfir menningarlíf borgarinnar þessa sex daga sem hátíðin stendur yfir.
Frítt er inn á alla viðburði.