Barnamenningarhátíð kveður að sinni!

Við þökkum öllum þeim leik- og grunnskólum, frístundamiðstöðvum, dans-, myndlista- og tónlistarskólum, íþróttafélögum, menningar- og listastofnunum, félagasamtökum, sjálfstætt starfandi listhópum og listamönnum og öðrum sem að skipulagningu og framkvæmd viðburða á Barnamenningarhátíð komu, hjartanlega fyrir þeirra framlag.

Tæplega 11 þúsund börn komu fram á hátíðinni fyrir hönd skóla sinna, frístundamiðstöðva eða listaskóla, tóku þátt í skólasmiðjum eða voru áhorfendur á skólasýningum. Gestir voru rúmlega 42 þúsund.

Sjáumst glöð að ári liðnu!

Barnamenningarhátíð í Reykjavík

Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 17.-22. apríl 2012. Þema hátíðarinnar er Uppspretta og endurspeglast það með ólíkum hætti í tæplega 200 viðburðum sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu!

Dagskrá fyrir Barnamenningarhátíð er fáanleg fyrir Iphone og Android tæki í gegnum hugbúnað sem hlaða má niður ókeypis í gegnum viðkomandi netverslun. Smellið á "Dagskrá fyrir" og hlaðið niður viðbótina (Happening) sem birtist til vinstri á nýrri vefsíðu.



Skoða Dagskrá

Það er hægt er að skoða alla viðburði Barnamenningarhátíðar með því að smella á "Skoða Dagskrá" en einnig er þar hægt að setja saman og prenta út eigin dagskrá á mjög einfaldan hátt.


Skoða Dagskrá

FACEBOOK

Á Facebook síðu hátíðarinnar eru settar inn myndir frá viðburðum og greinar frá ungum blaðamönnum sem blogga um hátíðina. Smellið á "Facebook" til þess að fylgjst með!


Facebook


Ísland er land þitt

Nemendur frá Danslistarskóla JSB sýna dansatriði úr sýningunni Ísland er land þitt í Ráðhúsinu. Sýnd verða dansverkin Sjórinn og Djákninn á Myrká eftir Söndru Ómarsdóttur og Gullfoss og Geysir eftir Ásdísi Ingvadóttur.

Barnamenningarhátíð

Það er von okkar að hátíðin verði skemmtileg og gefi börnum og öðrum gestum tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sér að kostnaðarlausu.

Stutt í spunan

Gestum gefst færi á að kynnast ullarvinnslu fortíðar með því að prófa, fikta og skoða ýmis tæki og tól sem eru mörgum framandi. Þeir fá tækifæri til að sýna snilli sína með halasnældurnar sem þurfa vonandi ekki á hanga á bláþræði.